Fréttir
Námskeið febrúar og mars
Handverksnámskeið í febrúar
Perlufestar og víkingakeðjur, vattarsaumur, leður og roðvinna og tóvinna og spuni.
Helgin 27. - 28. febrúar.
Kennarar:
Helen Swartling -vattarsaumur
Signý Ormarsdóttir -leður og roðvinna
Jóhanna Pálmadóttir -tóvinna og spuni
Margrét Linda Gunnlaugsdóttir -perlufestar og víkingakeðjur
Verð 19.500- til 21.500-. 18 kennslustundir. Hádegisverður og kaffi innifalinn.
Hafið samband í tölvupósti: textilsetur@simnet.is
Vetrarnámskeiðin 6.mars - 9.mars
Handverksnámskeið í Kvennaskólanum á Blönduósi þar sem andi formæðra
ræður ríkjum. Setið er saman frá morgni til kvölds í 4 daga við hannyrðir án amsturs hversdagsins. Hádegisverður, hátíðarkvöldverður og kaffi innifalið.
Verð 44.500 kr. 32 kennslustundir. Stundatafla.
Dagskráin byggist á námskeiðum í prjóni, hekli og orkeringu.
Kennarar Ragnheiður Eiríksdóttir, Edda Lilja Guðmundsdóttir,
Katrín Ósk Björnsdóttir og Helga Jóna Þórunnardóttir. Sjá nánar hér.
Viðbótardagskrá með Sirrý.
Námskeiðið "Að laða til sín það góða"
á sunnudagskvöld og þakklætisganga
á mánudagsmorgun.
Verð 44.500 kr.
Munið endurgreiðslur stéttarfélaganna.
Hafið samband í tölvupósti: textilsetur@simnet.is
Námskeiðið í samstarfi við Knitting Iceland.

|