Fundur NTA - NTC í Helsinki, Finnlandi 12.-13.október 2008.

Mættar voru fulltrúar NTA - NTC, Nordic Textile Art og Nordic Textile Council (fulltrúaráðið)
frá Finnlandi: Raija Jokinen og Aino Kajaniemi
frá Noregi: Eli Nordbo.
frá Danmörku: Gina Hedegaard Nielsen og Lisbeth Tolstrup.
frá Svíþjóð: Britta Kleberg og Kajsa Oeme
frá Íslandi: Hrafnhildur Sigurðardóttir og Ásdís Birgisdóttir, f.h. Textílfélagsins og Textílsetursins.

Fundað var í húsnæði Listaháskólans í Helsinki, TaiK og Menningarráðstefnuhöllinni Hanaholmen.

Fundirnir voru mjög gagnlegir, sambönd og tengsl styrktust og mörg verkefni eru í farvatninu.

Stefnt er að því að næsti haustfundur NTA-NTC verði á Blönduósi.
Þá er á döfinni samnorræn textílsýning MiniTextiles 2010 fiber-flade-form, sem opnar sumarið 2010 í Danmörku og fer um
norðurlöndin næstu 12 mánuði. Er stefnt að því að sýningin komi til Íslands maí - júní 2011 og Reykjavík í maí og í júní á
Blönduósi. Í tengslum við sýninguna væri hægt að bjóða upp á seminar fyrir innlenda og erlenda þátttakendur.

Dagskrá og verkefni á döfinni hjá NTA :
2009: Aðalfundur NTA 6.-8. mars í Malmö, og aftur er allur kostnaður greiddur af NTA. :)
stór samnorræn textílsýning í Borås, opnar í júní, einnig seminar og stjórnarfundur
október: stjórnarfundur á Blönduósi

2010: Aðalfundur í mars í Stockhólmi
MiniTextiles, farandsýning, opnar í Danmörku
október: stjórnarfundur

2011: maí-júní, MiniTextiles, seminar, Íslandi,

Einnig var rætt um aðgengi listamanna, almennings og fræðimanna að upplýsingum um textíllistamenn og textíllist og
mikilvægi þess að koma á fót gagnagrunnum í hverju landi fyrir sig. Var mikill áhugi fyrir því verkefni. Leitað verður leiða til
að afla styrkja til þessa.

Skýrsla verður send síðar.
Skýrsta NTA-NTC Kaupmannahöfn júní 2008.

 

Febrúar 2008

NORDIC TEXTILE ART

Konseptlist í textíl

Ráðstefna og textíllistasýning 12.-15. júní 2008 - FRESTAÐ
Textílsetur Íslands
Blönduós

Textílsetur Íslands var sett á laggirnar með árið 2005 og er starfsemin til húsa í gamla Kvennaskólahúsinu á Blönduósi, sem

nú er verið að gera upp. Meginhlutverk með stofnun Textílseturs Íslands er að efla rannsóknir og menntun á íslenskum

textíliðnaði og handverki. Einnig eru uppi hugmyndir um að skapa háskólanemum, fræðimönnum og listafólki starfsaðstöðu

fyrir vettvangsnám og rannsóknir á sviði textílfræða og jafnframt því að vera alþjóðlegt fræðasetur sem heldur ráðstefnur,

málþing og námskeið um textíl.

Í Húnaþingi er löng hefð fyrir íslensku handverki og textíl, enda eitt stærsta sauðfjárræktarhérað landsins. Á Blönduósi er

bæði ullarþvottastöð Ístex og Heimilisiðnaðarsafnið sem tengjast textílhefðinni. Þessir staðir verða heimsóttir meðan á

þinginu stendur, sem og Sjávarleður á Sauðárkróki og Glaumbær í Skagafirði.

Dagskrá þingsins er eftirfarandi:

Fimmtudagur 12. júní

Komið til Blönduóss um eftirmiðdaginn. Gistirými er í hóteli, gistiheimili og sumarbústöðum á svæðinu.
17:00 Setning þingsins í félagsheimili Blönduósbæjar.

Föstudagur 13. júní

08:00 - 09:00 Morgunmatur
09.00 - 12:00 Opnunarræða, ásamt ræðum norrænu meðlima NTA frá hverju norðurlandanna.
12:00 - 13:00 Hádegismatur – súpa og brauð.
13:00 - 15:00 Norræn konseptlist í Noregi. Nútíma íslensk textíllist.
15:00 - 17:00 Heimsókn í Heimilisiðnaðarsafn og í Textílsetur Íslands.
19:00 Kvöldmatur

Laugardagur 14. júní

08:00 - 09:00 Morgunmatur
09:30 - 16:00 Skoðunarferð. Ullarverksmiðja á Blönduósi heimsótt, Sjávarleður á Sauðárkrók og Glaumbær.
19:00 Kvöldmatur

Sunnudagur 15. júní

08:00 - 09:00 Morgunmatur
09:00 - 12:00 Ræður og umræður um framtíð Textílseturs Íslands
12:00 - 15:00 Hádegismatur og þingslit.

NTA og Textílsetur Íslands vonast til að sjá þig næsta sumar!