Textílsetur

Textílsetur
 
Forsíða - Home
Stjórn - Board
Markmið - Goals
Myndir - Photos
Blönduós - Town
Tenglar - Links
Póstur - e-mail
Viðburðir - Activities
Eldri fréttir - Older news
Vatnsdæla á refli
Búsílag - Shop
Listamiðstöð - Residency
 

 

Forsíða - Home

Vatnsdæla á refli
Menningarverkefnið Vatnsdæla á refli verður kynnt

þriðjudaginn 11. janúar kl. 13.30 
í Sölvhól, Tónlistardeild LHÍ, Sölvhólsgötu 13, 101 Reykjavík.

sjá myndir frá kynningu

Við það tækifæri opinberaði Kristín Ragna Gunnarsdóttir teikningar af einum kafla úr Vatnsdælasögu sem verða útfærðar í útsaumaðan myndrefil með þátttöku nemenda í hönnunardeild LHÍ og almennings.

Verkefnið Vatnsdæla á refli er hugarfóstur Jóhönnu E. Pálmadóttur, bónda og handavinnukennara á Akri í Austur-Húnavatnssýslu og er unnið í samstarfi við Listaháskóla Íslands, Ístex, Textílsetur Íslands og félagið Landnám Ingimundar gamla.

Vatnsdæla er myndræn saga af ástum, átökum og erjum, ættarsaga Hofverja í Vatnsdal og gerist á 9.- til 11.öld.

Verkefnið Vatnsdæla á refli á fyrirmynd í Bayeux-reflinum sem saumaður var á 11.öld.  Markmiðið er að endurvekja forna sögu með frumlegum og nýstárlegum hætti í samstarfi við unga hönnuði samtímans.  Samhliða því eru fornri útsaumsgerð, refilsaumnum, gerð skil.

Kristín Ragna Gunnarsdóttir, teiknari og hönnuður,  hefur umsjón með hönnun myndefnis sem útfært verður nánar af nemendum á 2. ári í grafískri hönnun við LHÍ. Fyrstu sporin verða tekin í refilinn n æsta sumar á Húnavöku. Þá gefst almenningi, jafnt heimafólki, ferðamönnum og öðrum gestum, kostur á að marka spor í menningarsöguna með því að koma í Kvennaskólann á Blönduósi og taka þátt í útsaumnum.

Verkefnið er styrkt af Menningarráði - og Vaxtarsamningi Norðurlands Vestra.