Textílsetur

Textílsetur
 
Forsíða - Home
Stjórn - Board
Markmið - Goals
Myndir - Photos
Blönduós - Town
Tenglar - Links
Póstur - e-mail
Viðburðir - Activities
Eldri fréttir - Older news
Vatnsdæla á refli
Búsílag - Shop
Listamiðstöð - Residency
 

Vatnsdæla á refli
sjá yfirlit yfir framvindu verkefnisins neðst á síðu

Haraldur dauður

Vatnsdæla er saga af ástum, átökum og erjum, ættarsaga Hofverja í Vatnsdal og gerist á 9.- til 11.öld. Sögusviðið teygir sig frá Noregi og Svíþjóð í austri til Orkneyja og Skotlands í vestri og svo norður til Íslands þar sem aðal sögusviðið er, í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu. Sagan er talin skrifuð á síðari hluta 13. aldar.

Verkefnið Vatnsdæla á refli á fyrirmynd í Bayeux-reflinum sem saumaður var á 11. öld. Markmið þess er að endurvekja Vatnsdælu á nýjan hátt en þó gamlan, og segja söguna sem er myndræn og átakamikil, út frá nýju sjónarhorni. Samhliða því er fornri útsaumsgerð, refilsaumnum, gerð skil. 


Verkefnið
er hugarfóstur Jóhönnu E. Pálmadóttur, bónda og handavinnukennara og er unnið í samstarfi við Listaháskóla Íslands, Ístex, Textílsetur Íslands á Blönduósi og félagið Landnám Ingimundar gamla.

Refillinn verður byggður upp þannig að sagan rennur eftir reflinum eins og teiknimynd. Sögusviðið fylgir lengd refilsins en hæð og lengd afmarkast af vinnu hönnuða og fræðimanna. Ákvörðun um stærð ræður ekki frásögninni heldur er það sagan sem ræður stærð refilsins.
Er horft til þess að verkefnið verði ný leið til að efla menningartengda ferðaþjónustu á svæðinu og að refillinn verði eftirsóknarverður á meðan á vinnu hans stendur og eftir að hann er uppsettur.


Bayeux kokkar

Verkefnið er tvískipt. 

Í fyrri hluta verkefnisins verður undirbúnings-, þróunar- og hugmyndavinna. Stjórn verkefnisins hefur yfirumsjón með því og eru það fulltrúar samstarfsaðila sem fara með faglega og fræðilega þekkingu á verkefninu. Kristín Ragna Gunnarsdóttir, listamaður, gerir teikningar af 26. kafla Vatnsdælu og mun í framhaldi halda utan um verkefnið með kennslu í LHÍ. Hönnun refilsins verður unnin af nemendum Listaháskólans á vorönn 2011. Ístex ehf. spinnur bandið og litar það sem þarf til útsaumsins. Eingöngu verður notuð íslensk lambsull.

26.kafli Kristín Ragna


26. kafli refilsins - teiknaður af Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur, afhendur í jan.2011
Fyrirmyndin leggur drög að þeim stíl sem verður notaður við kennsluna og nemendavinnuna.

Smellið á myndina til að sjá stærri mynd.
Sjáið hér myndir frá afhendingu.


Síðari þátturinn
felst í að sauma út refilinn eftir teikningum sem koma frá Kristínu Rögnu og nemendum Listaháskóla Íslands. Refillinn verður saumaður við sérstak borð eða á útsaumsgrind, meðan unnið er að honum. Fyrsta sporið verður tekið á Húnavöku um miðjan júlí 2011.

Námskeið verða haldin á Blönduósi meðan refillinn er í vinnslu til að gefa þátttakendum kost á að læra refilsaum og þær vinnuaðferðir sem nauðsynlegar eru til að ljúka verkinu. Blandað verður saman útsaum og fræðslu bæði í fyrirlestrarformi og sýningarformi ásamt ferðum um söguslóðir undir leiðsögn heimamanna. Einnig fá nemendur að fara heim með þær prufur sem þeir gera á námskeiðinu sem verða síðar minjagripir. Frá upphafi útsaumsins liggur frammi bók þar sem nöfn og upplýsingar allra þeirra sem setja sín spor í refilinn verða skráð.

Verkefnið styður við menningartengda ferðaþjónustu í samvinnu við heimaaðila og felst í að kynna Vatnsdælu fyrir ferðamönnum á sem fjölbreyttastan hátt. Boðið verður upp á ferðir um svæðið, kennslu í útsaumi og námskeið. Hugmyndin er að halda námskeið undir ýmsum formerkjum t.d. fræðileg námskeið, hvíldarnámskeið, upplifunarnámskeið o.fl.  Ferðamaðurinn er ekki einungis áhorfandi, heldur einnig þátttakandi í verkinu.  Með því að sauma nokkur spor í refilinn taka þeir þátt í að koma þessari einstöku sögu á framfæri.

Þá verða hannaðir og framleiddir ýmsir minjagripir samhliða verkefninu. Þegar refillinn er tilbúinn mun hann eflaust vekja verðskuldaða eftirtekt ferðamanna sem leið eiga um Húnavatnssýslur.

Stefnt er á að staðsetning refilsins verði í Kvennaskólanum á Blönduósi, á meðan á vinnu stendur. Til frambúðar er ætlunin að koma honum fyrir í Klausturstofu á Þingeyrum ef viðbygging rís þar innan þess tíma sem áætluð verklok eru.  

Á sumrin er ætlunin að ferðafólk fái að kaupa sig inn á verkið, t.d. klukkustund í senn þar sem viðkomandi getur sett sín spor í refilinn um leið og hann lærir þennan gamla saum, refilsauminn sem einangraðist á Íslandi á miðöldum, og fá svo nafn sitt í bókina góðu.

Hermenn Hestamenn

Vatnsdæla - frumsýning á fyrstu teikningum Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur 11.janúar 2011.
Nemendaferð LHÍ í Vatnsdal 21.janúar 2011.
Nemendur LHÍ sýna drög að teikningum Vatnsdælu 18.febrúar 2011.

Verkefnið er styrkt af Menningarráði - og Vaxtarsamningi NV.

 

 

Forsíða - Home