|
Viðburðir Textílseturs í Kvennaskólanum
Ákveðið hefur verið að fella niður námskeið, tímabundið. Auglýst verður þegar þau verða tekin upp aftur.
Prjónakaffi verður haldið yfir vetrarmánuðina.
Hvorutveggja verður auglýst á heimasíðunni og facebook "Textilsetur Íslands".
Undanfarin ár hafa verið eftirfarandi atburðir á vegum Textilseturs Íslands:
Námskeið í kertagerð:
Námskeið 1: (aukanámskeið) 10-14.
Námskeið 2: 14-18
Námskeiðin eru 4 klst. eða 6 kennslustundir.
Námskeiðið kostar 8.500- kr. Efni er innifalið. Nemendur taki með sér svuntu, inniskó, nesti og lítinn kassa eða poka fyrir afurðirnar.
Ath. vegna mikillar skráningar hefur verið bætt við námskeiði á laugardagsmorgun. Sjá hér að ofan.
SKRÁNING HÉR.

PRJÓNAKAFFI Í JANÚAR
 |
Prjónakaffi
fimmtudaginn 13.janúar kl. 20.oo í Kvennaskólanum.
Vatnsdæla á refli, Jóhanna Pálmadóttir
kynnir verkefnið og sýnir myndir.
Dómínóprjón verður kennt.
Kaffi og meðlæti. Verið velkomin. |
Vatnsdæla á refli
Menningarverkefnið Vatnsdæla á refli verður kynnt
þriðjudaginn 11. janúar kl. 13.30
í Sölvhól, Tónlistardeild LHÍ, Sölvhólsgötu 13, 101 Reykjavík. (gengið inn frá Klapparstíg) sjá kort
 |
Við það tækifæri opinberar Kristín Ragna Gunnarsdóttir teikningar af einum kafla úr Vatnsdælasögu sem verða útfærðar í útsaumaðan myndrefil með þátttöku nemenda í hönnunardeild LHÍ og almennings.
Verkefnið Vatnsdæla á refli er hugarfóstur Jóhönnu E. Pálmadóttur, bónda og handavinnukennara á Akri í Austur-Húnavatnssýslu og er unnið í samstarfi við Listaháskóla Íslands, Ístex, Textílsetur Íslands og félagið Landnám Ingimundar gamla.
Vatnsdæla er myndræn saga af ástum, átökum og erjum, ættarsaga Hofverja í Vatnsdal og gerist á 9.- til 11.öld.
Verkefnið Vatnsdæla á refli á fyrirmynd í Bayeux-reflinum sem saumaður var á 11.öld. Markmiðið er að endurvekja forna sögu með frumlegum og nýstárlegum hætti í samstarfi við unga hönnuði samtímans. Samhliða því eru fornri útsaumsgerð, refilsaumnum, gerð skil.
Kristín Ragna Gunnarsdóttir, teiknari og hönnuður, hefur umsjón með hönnun myndefnis sem útfært verður nánar af nemendum á 2. ári í grafískri hönnun við LHÍ. Fyrstu sporin verða tekin í refilinn n æsta sumar á Húnavöku. Þá gefst almenningi, jafnt heimafólki, ferðamönnum og öðrum gestum, kostur á að marka spor í menningarsöguna með því að koma í Kvennaskólann á Blönduósi og taka þátt í útsaumnum.
Verkefnið er styrkt af Menningarráði - og Vaxtarsamningi Norðurlands Vestra. |
PRJÓNAKAFFI Í DESEMBER
Prjónakaffi verður í Kvennaskólanum
þriðjudaginn 14.desember kl. 20.oo.
Boðið verður upp á heitt súkkulaði, vöfflur og þetta venjulega...
Sýnikennsla í dómínóprjóni frestast þvímiður til næsta prjónakaffis í janúar.
|
 |
Elizabeth Johnston - hjaltneskt prjón - MASTERCLASS námskeið
Elizabeth Johnston verður með erindi um Hjaltlenska prjónahefð þann 21.nóvember n.k. á Textílverkstæðinu Korpu, Korpúlfsstöðum. Í fyrirlestrinum ætlar Elizabeth að fara í gegnum Hjaltneska prjónasögu og munum við fylgja prjónlesinu frá elstu fundum til dagsins í dag. Fyrirlesturinn fer fram á ensku en Hildur Hákonardóttir veflistakona mun vera fyrirlesara innan handar með þýðingu og útskýringar.
Fyrirlestur: sunnudaginn 21.nóv. kl. 20.oo. Breytt staðsetning: SJÓMINJASAFN REYKJAVÍKUR, GRANDAGARÐI.
MASTERCLASS námskeið: mánudaginn 22. nóvember kl. 17.30- 22.00.
AUKANÁMSKEIÐ: miðvikudaginn 24.nóv. kl.17.30.
STAÐUR: Textílverkstæði Korpa, Korpúlfsstaðir. (gengið upp rampinn hægra megin séð frá bílastæði).
Skráning: textilsetur@simnet.is og í s. 894-9030.
MIKIL SKRÁNING ER ÞVÍ HÖFUM VIÐ BÆTT VIÐ NÁMSKEIÐI. sjá hér að ofan.
Verð: fyrirlestur 1.000 kr., námskeiðið 5.000 kr. Bæði: 5.500 kr.
Gjaldið má leggja inn á reikn. 0307-26-680 kt.680405-1150. Prentið út staðfestingu.
Sjá nánari lýsingu á fyrirlestri og námskeiði hér.
Elizabeth Johnston er spuna- og prjónasérfræðingur frá Hjaltlandsseyjum. Hún er stödd hér á landi í lok nóvember að vinna verkefni um kljásteinavefstaðinn sem er samstarfsverkefni Hildar Hákonardóttur veflistarkonu, Elizabethar og Austureyjasafnsins í Noregi.
Elizabeth er mjög virt í heimalandinu fyrir mikla þekkingu á tóvinnu og spuna og hjaltneskum prjónaaðferðum. Hún lærði sín fræði í barnæsku þar sem tóvinna og prjón var stundað til tekjuöflunar á heimili hennar og hjá stórfjölskyldu. Opnaði hún verslun sem selur handspunnið garn og handunnar flíkur.
Mikill áhugi á textílsögu Hjaltlandsseyja varð til þess að hún starfi við fornleifarannsóknir við Scatness Iron Age Village og Brough, á Hjaltlandseyjum. Sem sérfræðingur í spuna- og vefnaði hefur hún endurgert og leiðbeint við forna textíla frá tímabilinu 400 BC til 700 AD. Þekking Elizabethar er víðtæk og fjölbreytt, hún stundar rannsóknir og rekur lítið fyrirtæki, Shetland Handspun, þar sem hún selur eigin hönnun á flíkum og sjölum og ásamt handspunnu og jurtalituðu bandi.
Haustnámskeið Textílseturs í Kvennaskólanum frá 22. - 24. okt. 2010
Áherslan er á prjón á þessu námskeiði. Þekktir danskir prjónahönnuðir sækja okkur heim.
Helga Isager: örnámskeið og peysuhönnun.
Á föstudagskvöldinu mun Helga halda örnámskeið og kenna eina spennandi aðferð sem hún nýtir í eigin prjón. Á helgarnámskeiðinu mun hún kenna að hanna eigin peysu með þeirri prjóntækni sem heillar þig. Helga kennir ýmsa spennandi tækni sem hentar í peysur og hvernig reikna á út peysu sem passar hverjum og einum.
Helga Jóna Þórunnardóttir: Prjóntækni og frágangur.
Hvað gerir punktinn yfir i-ið; kantar, stroff, affellingar, uppfitjanir og frágangur á prjónaflíkum.
Verð og námskeiðslýsingar sjá nánar hér.
|
|
|
Sjá einnig Textílsetur og haustnámskeiðin á Facebook.
Prjónakaffi 21. október kl.20.oo.
Jóhanna E. Pálmadóttir segir frá Stóru Ullarselsferðinni til Wales þar sem heimsótt var m.a. handverksverkstæði.
Einnig mun Jóhanna kynna verkefnið „Ísbjarnarpeysur“ fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu.
Jóhanna E. Pálmadóttir sauðfjárbóndi og kennari í tóvinnu mun segja frá Stóru Ullarselsferðinni sem farin var til Wales í lok júní sl. Aðalmarkmið ferðarinnar var að fara á Walesku landbúnaðsýninguna sem er stæsta landbúnaðarsýning á Bretlandseyjum og heimsækja handverksfólk. Þar vakti helst athygli hópsins öll þau gríðarlega mörgu sauðfjárkyn og ekki síst hvernig bændur blönduðu þessi kyn til að ná frá ákveðnum eiginleikum t.d. gagnvart ullinni. Einnig vakti mikla athygli heimsmeistarakeppnin í rúningi sem haldin var á sýningunni.
Heimsóttir voru þrír handverksstaðir þar sem hópurinn skoðaði og tók þátt í vefnaði og flókagerð.
Sigurbjörg Jónsdóttir sauðfjárbóndi og handverkskona fékk þá hugmynd að nota ísbjörnin sem hugmynd að mynstri í peysu. En eins og flestir vita er ísbjörninn í merki Húnavatnssýslu. Hún fékk Védísi Jónsdóttur, aðalhönnuð Ístex til margra ára, til að hanna munstrið. Nú er stefnan að koma peysumynstrinu í umferð og gefa húnvetningum tækifæri til að nýta það. Mynstrin eru mjög falleg og hreinleg. Gaman væri að húnvetnskir prjónarar komi henni á framfæri og um leið verði ísbjarnarpeysan tákn sýslunnar.
Prjónakaffi 27. september kl.20.oo.
Handprjón.is er ný verslun með vandað og fjölbreytt innflutt garn. Verslunin kom í fyrsta prjónakaffi haustsins með mikið úrval af þessu spennandi garni.
Allt úrvaliðl er á heimasíðunni svo áhugasamir geta pantað þaðan .
Mislit ull á plötunum, mislitt ullargarn og mislitt ullar/hörgarn. Bómull, bómull/ull, mohair og silki.
Vandað og fallegt garn á hagstæðu verði.
Sumarnámskeið Textílseturs í Kvennaskólanum frá 26. - 29. júní 2010
4 námskeið á jafnmörgum dögum. Nemendur vígðu nýuppgerða heimavistina og því var unnið af kappi og spjallað af mikilli lyst fram eftir kvöldi alla daga. Matast í matsalnum og lært og kennt í kennslustofum og kennslusölum.
Útsaumur - nafnamerkingar: Björk Ottósdóttir, kennari frá Skals handårbejdesskole.
Orkering: Helga Jóna Þórunnardóttir, eigandi Nálarinnar.
Gimb: Eva Hulda Emilsdóttir, handavinnukennari.
Frjálst hekl: Edda Lilja Guðmundsdóttir, handavinnukennari og höfundur 52 húfur á 52 vikum. www.snigla.com.
Sjá einnig Textílsetur og sumarnámskeiðin á Facebook.
|
| |
 |
 |
 |
|
Nánari upplýsingarí s. 894-9030 og textilsetur@simnet.is.
Skráning hér.
Handverk óskast
Ert þú að prjóna, þæfa, skera út, hekla, renna, sauma ....???
Handverkshús Textílseturs óskar eftir handverki til að selja á komandi sumri.
Handverk af NV-landi sérstaklega velkomið !
|
|
Vinsamlega hafið samband við Ásdísi s.894-9030.
Aðstoðað við verkefnaval, ráðgjöf og leiðbeiningar sé þess óskað. |
Prjónaslóð – námskeið í prjóni. |
Textílsetur Íslands og Ístex bauð upp á námskeið í prjóntækni og prjónahönnun sem hefur það að markmiði að skapa nýja prjónavöru sem ber með sér einkenni NV lands.
Afrakstur þess verða flíkur sem handverkshópar og einstaklingar geta framleitt og selt.
Tvö námskeið voru haldin, (2 skipti hvert námskeið)
annarsvegar á Sauðárkróki og hinsvegar á Blönduósi. Þátttakendur voru um 35 í allt.
20.mars – Sauðarkróki - laugard.
21.mars – Blönduósi - sunnud.
17.apríl – Sauðárkróki - laugard.
18.apríl – Blönduósi - sunnud.
Kennarar voru Hulda Hákonardóttir frá
Ístex og Ásdís Birgisdóttir frá Textílsetrinu leiðbeindu.
Verkefnið hefur það einnig að markmið að stuðla að meiri samskiptum og þekkingu handverks- og prjónafólks á NV landi.
Stefnt er að því að sýningar verði haldnar á útkomu verkefnisins og hlaut sá þáttur verkefnisins styrk frá Menningarráði NV.

Þátttakendur í verkefninu munu halda áfram að vinna með Textílsetrinu að þróun vöru eftir hugmyndum viðkomandi.
Nánari upplýsingar í s. 894-9030 eða í netfang: textilsetur@simnet.is.
Nánari námskeiðslýsing.
|
Myndsmiður Jón Sigurðsson |
|

Mýrarflétta - hönnun Ásdís Birgisdóttir |
| |
Prjónakaffi í Kvennaskólanum
 |
Garn.is var með veglega kynningu í Prjónakaffi Textílseturs fimmtudaginn 18. mars kl. 20.oo.
Inga og Elínborg kynntu prjónablaðið Björk, 2. tbl. sem er með úrvali uppskrifta af barnafötum.
Mikið úrval af nýju garni var til sölu.
|
Febrúarnámskeið 27. - 28.febrúar 2010.
Námskeið í roð og leðurvinnu og vattarsaumi voru haldin við afar góðar undirtektir síðustu helgina í febrúar.
Roð og leðurvinna.
Kennari Signý Ormarsdóttir.
Vattarsaumur.
Kennari Helen Swartling Lejludóttir.
|
  |
Haustnámskeið 24. - 27.okt. 2009.
Að tilefni haustnámskeiðanna verður boðið upp á fyrirlestur sem opinn er áhugasömum ásamt því að opið hús verður í lok námskeiðs.
Fyrirlestur – kl. 17.oo, laugardaginn 24.okt. í matsal Kvennaskólans.
Flækjur og fínerí – prjónamenning á vefnum.
Ragnheiður Eiríksdóttir kennari í prjóni á haustnámskeiðunum, mun leiða gesti um prjónamenningu á veraldarvefnum, en þar er að finna ótæmandi hugmynda- og upplýsingabrunn fyrir prjónara.
Opið hús – kl. 16.oo – 17.00, þriðjudaginn 27.okt. í Kvennaskólanum. Haustnámskeiðum Textílseturs lýkur með opnu húsi þar sem áhugasömum gefst tækifæri til að skoða afrakstur námskeiðanna og spjalla við nemendur og kennara. Prjón, hekl, gimb og spuni er meðal viðfangsefna.
PRJÓN - HEKL - GIMB - SPUNI
stundatafla - sjá nánar hér
Haustnámskeið Textílseturs í Kvennaskólanum á Blönduósi frá 24. okt. - 27. okt.
Mörg námskeið í boði, setjið saman stundatöflu að eigin vild....
Munið endurgreiðslur stéttarfélaganna... :)
Nánari upplýsingar í s. 894-9030 og textilsetur@simnet.is
Búsílag- handverkshús Textílseturs opnaði mánudaginn 1. júní kl. 13.oo. (sjá nánar).
Sumarnámskeiðin:
knipl - tálgun - baldýring - prjónahönnun
Sumarnámskeið Textílseturs stóðu yfir frá 27. júní - 1. júlí. Um 35 nemendur sóttu þessi fjögur námskeið og tókst frábærlega í alla staði. Veður var með besta móti enda oft setið úti við prjón og handavinnu á kvöldin. Sjá:http://www.facebook.com/ads/manage/#/album.php?aid=87029&id=103019738920
Næstu námskeið með þessu sniði verða í október og verður dagskrá birt innan tíðar.
SILKIMÁLUN-námskeið á Húnavöku
Þvímiður var ónóg skráning á námskeiðin í silkimálun en mikill áhugi er fyrir svona námskeiðum í haust. Þau verða auglýst síðar.
Handverk óskast
Ert þú að prjóna, þæfa, skera út, hekla, renna, sauma ....???
Handverkshús Textílseturs óskar eftir handverki til að selja á komandi sumri. Handverk af NV-landi sérstaklega velkomið !
Vinsamlega hafið samband við Ásdísi s.894-9030.
Aðstoðað við verkefnaval, ráðgjöf og leiðbeiningar sé þess óskað. |
|
Prjónakaffi maí - fimmtudaginn 14. maí kl. 20.00
Nálin - hannyrða- og föndurverslun í Reykjavík kynnti vöru sína og þjónustu.
|
Nálin er vönduð verslun með vörur fyrir
handavinnu og heimilið.
Kynntir verða stillanlegu hringprjónarinir,
www.knitpicks.com
spennandi garn, bækur og uppskriftir. |
Helga Jóna Þórunnardóttir handavinnukennari
frá Skals eigandi Nálarinnar og Ragnheiður Eiríksdóttir annar höfundur bókarinnar Prjóniprjón voru gestir Prjónakaffisins. |
|
|
| Helga Jóna mun kenna á námskeiði Textílseturs í júní. Sjá forsíðu. |
|
Prjónakaffi
Apríl 2009
Quiltbúðin - hannyrða- og föndurverslun á Akureyri kynnti vöru sína og þjónustu.
  
Quiltbúðin heimasíða
Mars 2009
Kompan - hannyrða- og föndurverslun á Sauðárkróki kynnti vöru sína og þjónustu.
Kompan heimasíða
Herdís í Kompunni kynnti margskonar vörur sem Kompan hefur á boðstólnum. Ýmiskonar garn í hekl, prjón og útsaum, ull í þæfingu og ýmisar útsaumspakkninga
Þá kynnti hún þá þjónustu sem verslunin býður upp á: námskeið, leiðbeiningar og pöntunarþjónustu.
Febrúar 2009
HANDVERK OG HÖNNUN
Gestur kvöldsins var Sunneva Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri HANDVERKS OG HÖNNUNAR.
Sunneva kynnti starfsemi HANDVERKS OG HÖNNUNAR, sýndi fjölda mynda og ræddi almennt um skilgreiningar í handverki, listiðnaði og hönnun.
Textílsetur Íslands stefnir að því að opna handverkshús á Blönduósi sumarið 2009.
Í vetur verður boðið upp á fræðslu, námskeið og þjónustu fyrir handverksfólk.
 
Janúar 2009
  
Í Prjónakaffinu fimmtudaginn 15. janúar var mjög góð þáttaka. Ásdís og Jóhanna voru með sýnikennslu í nokkrum spennandi prjónaaðferðum, t.d. "tíglaprjóni", að prjóna tvær ermar samtímis á einn langan hringprjón og ýmsar lausnir t.d. við uppfit og affellingar. Mikið var skraf og spjallað.
 Nokkrar spennandi heimasíður: prjona.net og
prjóna-leiðbeiningar.
|
Desember 2008
Fimmtudaginn 11. desember kl. 20.oo var Prjónakaffi og jólamarkaður í Kvennaskólanum á Blönduósi. Handverksfólk sýndi og seldi vörur af ýmsum toga. Skartgripi, jólaskraut, prjónavöru, kort, handklæði, tálgun, útskurð, töskur og leðurvöru. Veður var ekki með besta móti en aðsókn var prýðileg. Stemning var mjög góð.
Safnbúð og kaffistofa Heimilisiðnaðarsafnsins voru einnig opin. Þar var boðið upp á heitt súkkulaði og kaffiveitingar.
   
Nóvember 2008
Prjónakaffi í Kvennaskólanum
Miðvikudaginn 12.nóvember kl.20.oo var opið hús í matsal Kvennaskólans á Blönduósi. Kynnt var í máli og myndum ný prjónabók Ístex og fjöldbreytt framleiðsla á handprjónabandi.
Bókin er eins og fyrri bækur Védísar byggð á íslenskri handverkshefð en með óvæntum og skemmtilegum útfærslum. Í þessari bók er meiri áhersla á peysur fyrir yngstu börnin og herrapeysur, en einnig eru slár, kjólar og kvenlegar lopapeysur.
Gestir frá Ístex:
Guðjón Kristinsson, framkvæmdastjóri,
Védís Jónsdóttir, hönnuður
Rebekka Kristjánsdóttir, sölustjóri.
Mikið úrval bóka og uppskrifta að skoða.
Kaffiveitingar.
Áhugasamir eru hvattir til að mæta með prjóna og aðra handavinnu og eiga notalega kvöldstund saman.
Prjónakaffi í Kvennaskólanum
Prjónakaffi í Kvennaskólanum Blönduósi hóf göngu sína 12.nóv. s.l. haust og var afar vel sótt. Um 60 áhugasamar hannyrðakonur hlýddu á kynningu Védísar Jónsdóttur, hönnuðar Ístex um ferlið sem býr að baki garnframleiðslu og peysuhönnunar. Bækur og blöð voru til sýnis og úrval nýrrar hönnunar úr Lopi 28 frá Ístex.
Prjónakaffið í Kvennaskólanum er í 2. viku mánaðarins – áhugasamir eru hvattir til að mæta með prjóna eða aðra handavinnu, sýna sig og sjá aðra, fræðast og njóta.
Úrval bóka og tímarita eru til útláns.
Knitting Café
The Knitting Café in the Kvennaskóla building in Blönduósi was launched on the 12 th. of November. Many came to listen to designer Védís Jónsdóttir from Ístex on her design process of hanknitting. The Textile Center aims to make the Knitting Café a regular event in the second week of the month.
December Thursday 11th was along with a Christmas crafts fair in the Kvennaskóla building. Many craftspeople exhibited a variety og products. Jewlery, leathergoods, Christmas ornaments, handknitting, cards for various occasions, woodcarving, towels, bags and much more. The weather was unfortunately not at its best, but many visited and spirits were high.
January Thursday 15th. We will introduce various techniques such as knitting two identical items on one long knitting needle, unusual cast-ons and cast-offs, "patchwork" knitting. Guests are encouraged to share interesting knowledge.
February Wednesday 12 th. An introduction: What are arts and crafts, meaning and concept. The Textile Center plans to open a arts and crafts shop in Blönduós. Artisans and craftspeople are encouraged to attend.
March Tuesday 10 th. The crafts shop Kompan, Sauðárkróki, introduced its varied selection of materials and products for knitting, sewing, embroidery and much more !
April Wednesday 15th. The quilt and crafts shop, Quiltbúðin, Akureyri, will introduce its selection of quilting and craft supplies.
Október 2008
Apríl 2008
Aðalfundur Textílseturs Íslands
Þann 22. apríl var haldinn fulltrúaráðsfundur eigenda Textílseturs Íslands ses. Þar var kosin ný stjórn þar sem stjórnarseta núverandi stjórnar var á enda, eftir þriggja ára starf. Fráfarandi stjórn skipuðu Jóna Fanney Friðriksdóttir formaður, Jóhann Guðmundsson bóndi og Hrafnhildur Sigurðardóttir textíllistakona. Nýja stjórn skipa Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri, Jóhanna Erla Pálmadóttir og Jóhann Guðmundsson bóndi. Hrafnhildur Sigurðardóttir sem gegnt hefur störfum framkvæmdastjóra síðastliðið tæpt ár lætur jafnframt af störfum nú um mánaðarmótin.
Á fulltrúaráðsfundinum kom fram að fyrirhuguð ráðstefna og textíllistasýning sem til stóð að halda dagana 12.-15. júní 2008 hefur verið frestað um óákveðin tíma. Mun það verða eitt af verkefnum nýrrar stjórnar, með aðstoð nýs framkvæmdastjóra, að ákveða hvaða verkefni verða framkvæmt á komandi ári og hvort og hvenær textílþing verður haldið.
English version
April 2008
Annual meeting of Icelandic Textile Center
On April 22nd the annual meeting of the board of the Icelandic Textile Center was held. At the meeting a new board of directors was elected, since the current board had finished it’s three year of appointment. The board for the last three years included Jóna Fanney Friðriksdóttir, Jóhann Guðmundsson and Hrafnhildur Sigurðardóttir. The new board of the Icelandic Textile Center was appointed and includes Arnar Þór Sævarsson Blönduós town mayor, Jóhanna Erla Pálmadóttir and Jóhann Guðmundsson. Hrafnhildur Sigurðardóttir, who has been the director of the Icelandic Textile Center this past year, has resigned her job and will leave the center as of the coming month.
In the board meeting the textile seminar and exhibition, which was due to be held June 12-15, was postponed until a later date. It will be one of the tasks of the new board, along with a new director, to decide what projects will be on the agenda this coming year and when the textile seminar and exhibition will be held.
Febrúar 2008
NORDIC TEXTILE ART
Konseptlist í textíl
Ráðstefna og textíllistasýning 12.-15. júní 2008 - FRESTAÐ
Textílsetur Íslands
Blönduós
Textílsetur Íslands var sett á laggirnar með árið 2005 og er starfsemin til húsa í gamla Kvennaskólahúsinu á Blönduósi, sem nú er verið að gera upp. Meginhlutverk með stofnun Textílseturs Íslands er að efla rannsóknir og menntun á íslenskum textíliðnaði og handverki. Einnig eru uppi hugmyndir um að skapa háskólanemum, fræðimönnum og listafólki starfsaðstöðu fyrir vettvangsnám og rannsóknir á sviði textílfræða og jafnframt því að vera alþjóðlegt fræðasetur sem heldur ráðstefnur, málþing og námskeið um textíl.
Í Húnaþingi er löng hefð fyrir íslensku handverki og textíl, enda eitt stærsta sauðfjárræktarhérað landsins. Á Blönduósi er bæði ullarþvottastöð Ístex og Heimilisiðnaðarsafnið sem tengjast textílhefðinni. Þessir staðir verða heimsóttir meðan á þinginu stendur, sem og Sjávarleður á Sauðárkróki og Glaumbær í Skagafirði.
Nóvember 2007
Frétt frá vefritinu Skagafjörður.com(myndin er linkur)

Textílsetrið á Blönduósi - Áform um textílskóla á háskólastigi
Í stjórn Textílsetursins frá stofnun árið 2005 hafa átt sæti þau Jóhann Guðmundsson, bóndi í Holti, Jóna Fanney Friðriksdóttir, fyrrum bæjarstjóri á Blönduósi og Hrönn Vilhelmsdóttir, textílhönnuður.
Á fulltrúaráðsfundi þann í ágúst sl. sagði Hrönn sig úr stjórn vegna anna og í hennar stað kom Hrafnhildur Sigurðardóttir, textílhönnuður og myndlistarmaður.
Á haustdögum var Hrafnhildur jafnframt ráðin sem framkvæmdastjóri Textílseturs Íslands.
Þessa dagana er stjórn að ljúka við stefnumótandi áætlun til tveggja ára en starfsemi Textílsetursins hefur aðsetur í húsnæði gamla kvennaskólahúsinu á Blönduósi. Elsti hluti skólans sem var byggður 1912 er friðaður af húsafriðunarnefnd og er merkilegt innlegg Einars Erlendssonar húsameistara (1883-1986) í byggingarsögu okkar Íslendinga. Þetta sögufræga hús þarfnast þó talsverðra viðgerða innan húss sem utan. Á fjárlögum 2007 fengust 10 mkr. til viðgerða utanhúss, vonast er eftir áframhaldandi stuðnings fjárlaganefndar Alþingis til uppbyggingar hússins á næstu árum. Sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu eiga 25% í þessu sögufræga húsi en eignarhlutfall ríkisins er 2/3.
Á döfinni hjá Texílsetri Íslands er að halda Norrænt textílþing á haustdögum 2008 í samvinnu við Norrænu textílsamtökin NTA, en mikill áhugi er fyrir verkefninu á Norðurlöndunum. Einnig hefur Textílsetur Íslands uppi áfrom um að stofna textílskóla á háskólastigi að norrænni fyrirmynd frá og með haustinu 2009. Þar hefur Textílsetrið hugsað sér að hefja á ný kennslu á sviði textíllista í landinu með áherslu á tauþrykk, vefnað og hönnun tengda þessum fögum.
Ljóst er að með brottfalli textíldeildar Myndlista- og handíðaskóla Íslands hvarf nær öll menntun í landinu með almennu handverki sem snýr að textíllistum og skildi eftir sig stórt skarð sem Textílsetur á Blöndósi ætlar sér að bæta. Þannig mun gamli Kvennaskólinn á Blönduósi óbeint taka upp þráðinn þar sem hann var lagður niður fyrir um þrjátíu árum og ganga í lífdaga með nýjum áherslum og kennsluháttum. Stjórn Textílseturs Íslands vonar að hin nýja stofnun muni ekki einungis skapa suðupott hugmynda og fræðslu í gamla kvennaskólahúsinu heldur jafnframt umsvif á öllum sviðum mannlífs í bænum.
Maí 2006
Textílsetur Íslands var stofnað á Blönduósi í mars 2005. Það er sjálfseignarstofnun og er til húsa í Kvennaskólanum á Blönduósi. Markmiðið með stofnun Textílsetursins er að efla rannsóknir og menntun í textíliðnaði og -handverki, á sviði klæðagerðar og í textíllistum. Á Textílsetrinu er ætlunin að skapa fræði- og listafólki starfsaðstöðu og bjóða upp á aðstöðu fyrir vettvangsnám háskólanema. Þar er stefnt að uppbyggingu alþjóðlegs fræðaseturs með ráðstefnuhaldi, málþingum og námskeiðum um textíl, bæði að frumkvæði stofnunarinnar og í samstarfi við aðra. Textílsetur Íslands er eina stofnun sinnar tegundar á Íslandi. Það starfar bæði á landsvísu og í alþjóðlegu samhengi. Stofnuninni er ætlað að vera miðstöð upplýsinga um textíl og vettvangur fólks til að koma á framfæri þekkingu um fagið.
Stjórn Textílseturs Íslands skipa Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstjóri Blönduóssbæjar, formaður, Hrönn Vilhelmsdóttir textílhönnuður, gjaldkeri og Jóhann Guðmundsson bóndi, ritari.
Older news
February 2008
NORDIC TEXTILE ART
Conceptual Textile Art
Seminar and textile exhibition June 12-15
Icelandic Textile Center
Blönduós
Iceland
Blönduós is a town situated in the north-western part of Iceland at the mouth of the river Blanda (http://www.blonduos.is/ and http://www.northwest.is/1blonduos.asp). The area is known for it’s sheep farming and wool industry, an industry which has now been relocated to eastern Europe, as in so many other of the Nordic countries. What is left is the wool-washing factory of Ístex wool products, the fish-leather factory, the textile museum (http://www.simnet.is/textile/index_e.htm) and now the newly formed Icelandic Textile Center, all of which will be visited during your stay in Iceland.
The outline of the seminar so far is:
Thursday 12. June
Participants arrive during the day and afternoon. Lodgings are available at summer cabins, motels and hotels at special offers for NTA.
17:00 Welcome buffé and toast with opening of exhibition.
Friday 13. June
08:00 - 09:00 Breakfast
09:00 - 12:00 Opening speeches from Nordic representatives in NTA. Followed by keynote speakers from all Nordic countries.
12:00 - 13:00
13:00 - 15:00 Speakers and summary with panel discussions.
15:00 - 17:00 Visit to the Textile Museum and the “Old Women’s College” the future home of Icelandic Textile Center.
19:00 Dinner
Saturday 14. June
08:00 - 09:00 Breakfast
09:30 Bus trip with guided sight-seeing tour. We will visit the wool-washing factory. We will drive north the coast and head for Sauðárkrókur with it’s fish-leather factory. In Suðárkrókur we will have lunch. On the way back we will stop at the old farmstead and museum Glaumbær.
19:00 Dinner
Sunday 15. June
08:00 - 09:00 Breakfast
09:00 - 12:00 Keynote speakers. Discussion of Icelandic Textile Center and NTA future.
Speeches and input from seminar guests.
12:00-15:00 Lunch and final roundup of mingling and discussions
NTA and the Icelandic Textile Center hopes to see you this summer in Iceland!
November 2007
The Textile Center is in Blönduós, a town in northern Iceland, which is beautifully situated at the mouth of the river Blanda. The center has it’s offices in the old Women’s College of Blönduós. This is a grand old building built in 1912, which has stood empty since the 70’s when the school was shut down. The building is currently being renovated and the Textile Center will gradually gain more space in the next two years.
Textile Center plans to hold a seminar and exhibition at Blönduós Cultural Center June 13th –18th 2008. The seminar and textile art exhibition, which will be held in co-operation with the newly formed network NTA – Nordic Textile Art, will focus on strengthening the bonds of Nordic as well as European textile artists to form a personal network. More information on the seminar and exhibition can be obtained from the Icelandic Textile Center website.
Currently there is no education to be found in Iceland on the undergraduate or graduate level in textiles. In the fall of 2009 the Textile Center plans to start education within the field of textiles with a focus on weaving, printmaking, papermaking and design relating to those subjects. The hope is that the Textile Center will encourage a new wave of textile art and textile education within Iceland in the coming years, with the co-operation of scholars and students from abroad, thereby reviving the textile spirit that the Women’s College back in it’s time was so well know for. The board of the Textile Center hopes that this new center will provide a melting pot of ideas and inspiration for textile artists and scholars for years to come and we wish you welcome to visit us for the seminar next year or whenever you are in the country in the future.
May 2006
The Icelandic Textile Centre was founded at Blönduós in March 2005. It is a non-profit institution housed in the “Kvennaskóli”, former school for young women, at Blönduós. The Textile Centre’s aims are to stimulate research and training in the field of textile industry and -handicraft, especially with regard to clothes manufacturing and textile art.
The Centre provides working facilities for researchers and training possibilities for students; it is a growing institution that stages conferences, lectures and seminars of national as well as international scope. Being the only institution of its kind in Iceland, it is meant to be a centre of information and a forum for people in the field of textile where they can seek knowledge and communicate their experiences.
The board of the Icelandic Textile Centre is composed of three persons: Ms. Jóna Fanney Friðriksdóttir, the mayor of Blönduós, Ms. Hrönn Vilhelmsdóttir, textile designer, and Mr. Jóhann Guðmundsson, farmer. |