Prjónaslóð
námskeið í prjóntækni og prjónahönnun
Flóra-hönnun Ásdís
Kennarar eru Hulda Hákonardóttir frá Ístex og
Ásdís Birgisdóttir, textílhönnuður frá Textílsetrinu.

Námskeiðin eru tvö, annað á Blönduósi og hitt á Sauðárkróki, tvö skipti. Kennt verður helgina 20.-21.mars og 17.-18.apríl.

Námskeiðið kostar 6.000 -kr.
-einungis er greiddur ferðakostnaður kennara.

Námskeiðin eru 15 kennslustundir.
Kennt er frá kl. 10.oo-16.oo.

Nemendur taki með sér nesti.
Kaffi verður á staðnum gegn mjög vægu gjaldi.

20.mars – laugard.
Sauðarkróki  - Sveinsbúð, hús Björgunarsveitarinnar
21.mars – sunnud.
Blönduósi  
- í Kvennaskólanum

17.apríl –laugard.
Sauðarkróki  - Sveinsbúð, hús Björgunarsveitarinnar

18.apríl – sunnud.
Blönduósi  - í Kvennaskólanum

Áhugasamir þurfa að skrá þátttöku sem fyrst hjá Textílsetrinu í s. 894-9030 eða í netfang: textilsetur@simnet.is.
Námskeiðið er hugsað fyrir konur sem hafa fengist við að prjóna
og vilja bæta við sig og skerpa á þekkingu og reynslu.

Markmiðið með námskeiðinu er efla og auka fjölbreyttni í þeirri prjónavöru sem framleidd er og seld á NV landi.

Unnið verður með hugmyndir að peysum og flíkum sem bera með sér einkenni NV lands í samráði við nemendur.

Ásdís B. textílhönnuður mun leggja tiðstoða við hönnun á flíkum til verkefnisins án gjalds.

Hönnunin verður til afnota þeim sem áhuga hafa á að framleiða og selja prjónavöru.
Brögð-hönnun Ásdís

Fyrri hluti
(20. og 21.mars) mun fjalla um prjóntækni.

Kenndar verða ýmsar aðferðir og byggir á að nemendur geri prjónaprufur til að festa í minni það sem verður kennt.
Uppfit – mismunandi uppfit – hvaða á við hverja flík og hvert
verkefni. Fit sem prjónast í báðar áttir.
Stroff – stroff geta verið afar mismunandi, hefðbundið hlutverk, skrautkantur, líning með innafbroti, pífa. Hvað skal gera við
peysuna – opin eða lokuð, stutt eða síð, víð eða þröng...
Útaukingar og úrtökur – hvar er fallegast að koma þeim fyrir,
forma flíkina með úrtöku og útaukningu, hvernig skal leysa
t.d. rými fyrir stórum barmi, short rows.
Affellingar –
mismunandi aðferðir við affellingu.
Tvíbandaprjón – og ríkjandi og víkjandi prjón – prjónfesta –
yfirfarið og sýndar prufur ..
Myndprjón – Kaffe Fasset prjón, prjónað fram og aftur
án þess að snúa við.

Seinni hluti
(17. og 18.apríl) mun fjalla nánar um lopapeysuna.

Farið verður í hlutföll, mikilvægi prjónfestu og frágang, þ.m.t. ísetningu rennilása og frágang lista.
Rósaleppaprjón
verður kennt.
Nemendur fá vönduð kennslugögn um það sem farið hefur verið yfir á námskeiðunum.

Mikið úrval verður af flíkum til að skoða og sýna mismunandi aðferðir.
Myndasýning um ferli ullarinnar hjá Ístex.
Ásdís leiðbeinir við litanotkun, fjallar um hönnun og sýnir flíkur sem hún hefur hannað.  Umræða við nemendur um hugmyndir að hönnun fyrir NV land.
Nemendur hafa tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri, og fá leiðbeiningar um útfærslur. Ásdís vinnur með hugmyndir nemenda og kemur með tillögur að verkefnum, peysum og smáhlutum.

Myndsmiður Jón Sigurðsson