Námskeið

Hekl (hekl fyrir byrjendur).

Kennari

Katrín Ósk Björnsdóttir. Útskrifaðist frá Tekstiluddannelsen i Viborg 2008.
Vinn nú í Nálinni, hannyrðaverslun og kennir á námskeiðum hjá Nálinni.

 

Markmið

Markmiðið er að þátttakendur nái að læra helstu grunnaðferðirnar í hekli og nái tökum á handbeitingu við hekl og að þeir nái að lesa úr uppskriftum / mynd-uppskriftum.
Markmiðið er að þátttakendur geti heklað að sjálfsdáðum þegar heim er haldið og að þeir geti sótt framhaldsnámskeið í hekli.

 

Aðferðir

Kenndar verða helstu hekl aðferðirnar, keðjulykkjur, fastapinnar, hálfstuðlar, stuðlar. Að skipta um liti í hekli, úrtökur og útaukingar, að forma hluti með hekli svo sem að forma hekl í “hnött”/ kúlu, að setja saman aðferðir svo úr verði fallegt verk. Unnið er með litlar prufur 10x10cm eða sambærilegar prufur. Ef þátttakendur eru duglegir gætu þeir byrjað á einföldum hlutum sem kennarinn er með uppskriftir af.

 

Verkfæri og áhöld

Heklunál og garn, skæri og nál til að ganga frá endum. Gott er að vinna með létt-lopa og/eða annað garn -Léttlopi og kambgarn er á staðnum og tilheyrir námskeiðsgögnum- ef þátttakendur vilja nota annað garn verða þeir að útvega það sjálfir.
Heklunálin á helst að vera frá 3 ½ til 5 ½.

 

Námsgögn

Kennarinn kemur með námsgögn um helstu aðferðirnar við hekl og kemur með prufur sem gætu hvatt þátttakendurnar til áframhaldandi vinnu við að hekla.

 

Tími

8 kennslustundir, 2 skipti.

Fjöldi nemenda
(hámark)

8 nemendur.