Námskeið |
Rússneskt hekl/ Túniskt hekl(fyrir byrjendur). |
Kennari |
Katrín Ósk Björnsdóttir, Útskrifaðist frá Tekstiluddannelsen i Viborg 2008. Vinn nú í Nálinni, hannyrðaverslun og kennir á námskeiðum sem Nálin er að bjóða |
Markmið |
Markmiðið er að þátttakendur nái að læra helstu grunnaðferðirnar í Rússnesku hekli og nái tökum á handbeitingu við það og að þeir nái að búa til sínar eigin uppskriftir. Markmiðið er að þátttakendur geti heklað að sjálfdáðum þegar heim er haldið. |
Aðferðir |
Kenndar verða helstu hekl aðferðirnar, að skipta um liti í hekli, úrtökur og útaukingar, mismunandi tæknir innan rússneska heklsins. Unnið verður með litlar prufur 10x10cm eða sambærilegar prufur. |
Verkfæri og áhöld |
Rússneskar heklunálar og garn, skæri og nál til að ganga frá endum. Gott er að vinna með létt-lopa og/eða annað garn, (Léttlopi og kambgarn er innifalið í námskeiðsverði) en ef þátttakendur óski eftir öðrum tegundum skulu þeir koma með sjálfir svo þeir geti fengið þekkingu á útkomunni sem mismunandi garn gefur. Heklunálar innifaldar í verði námskeiðsins. |
Námsgögn |
Kennarinn kemur með námsgögn um helstu aðferðirnar við rússneskt hekl og kemur með prufur sem gætu hvatt þátttakendurnar til áframhaldandi vinnu við að hekla. |
Tími |
8 kennslustundir, 2 skipti. |
Fjöldi nemenda |
8 nemendur. |