Námskeið

Halasnælduspuni

Kennari

Jóhanna E. Pálmadóttir, textilkennari.

 

Markmið

Að þátttakendur læri að spinna á halasnældu og tileinki sér spunatækni. Einnig verður kennt að tvinna á halasnældu.

 

Aðferðir

Unnið verður með ull. Ullin verður kemd, lyppuð og undirbúin fyrir spunann. Kennt verður að spinna annarsvegar í s-snúð og hinsvegar í z-snúð.

 

Verkfæri og áhöld

Halasnælda á hvern þátttakanda (leyfilegt er að taka sínar eigin halasnældur með ef vill) og ull, ásamt kömbum.

 

Námsgögn

Ljósrituð gögn frá kennara.

 

Tími

4 kennslustundir.

Fjöldi nemenda
(hámark)

Ca. 8 nem. hámark.