Námskeið

Tveir hlutir prjónaðir á 1 hringprjón.

Kennari

Katrín Ósk Björnsdóttir. Útskrifaðist frá Tekstiluddannelsen i Viborg 2008.
Vinnur núna í Nálinni, hannyrðaverslun og kennir á námskeiðum hjá Nálinni.

 

Markmið

Markmiðið er að þátttakendur nái tökum á tækninni að prjóna 2 hluti á 1 hringprjón. Eftir námskeiðið eiga þátttakendur að getað nýtt tæknina við að prjóna tvær ermar í einu, tvo vettlinga, grifflur eða legghlífar eða eitthvað sem þarfnast þess að vera eins.

 

Aðferðir

Kennt verður að prjóna tvo sokka í einu, þar sem byrjað er frá tánni og prjónað áfram upp og fellt af í strofinu.

Farið verður yfir yfir hinar ýmsu aðferðir til að byrja að prjóna tvo hluti á einn langan hringprjón, meðal annars aðferð til að
byrja að prjóna sokka eða vettlinga og byrja frá tánni/fingrunum og enda á stroffinu. Með þessari aðferð þarf ekki að sauma neitt saman, bara fela endana. Aðferðin er mjög þægileg til að prjóna sokka og vettlinga, handstúkur og jafnvel ermar - en með því að prjóna báða hluti í einu losnar prjónarinn við það sem kallað hefur verið "seinni-sokka-syndrómið", þ.e. að seinni sokkurinn er annað hvort ekki prjónaður eða endar nokkuð ólíkur þeim fyrri. Báðir hlutirnir eru prjónaðir eins, umferð fyrir umferð og tilfinningin er jafnvel sú að það gangi fljótar að prjóna því báðir hlutirnir eru tilbúnir á sama tíma. Á námskeiðinu eru prjónaðir litlir sokkar
en nota má aðferðina til að prjóna sokka í hvaða stærð sem er.

 

Verkfæri og áhöld

Prjónar no 4, 4 ½ , 5 80cm eða 100cm langir. Tvær létt-lopa hnotur í sitthvorum litnum, helst ljósar svo auðveldara sé að aðgreina sokkana og sjá hvað maður er að gera. Þátttakendur geta komið með eigin prjóna, garn verður til á staðnum.
Kennarinn er með prjóna til sölu.

 

Námsgögn

Kennarinn kemur með námsgögn um helstu aðferðina við að prjóna tvo sokka á einn hringprjón og kemur með prufu sokka til sýnis.

 

Tími

4 kennslustundir.

Fjöldi nemenda
(hámark)

8 nemendur.