Prjónatækni 1 og 2 skipti 8 kennslustundir.
Prjón er í eðli sínu einfalt og einfaldleikinn á stóran þátt í töfrunum sem einkenna prjón. Tvö prik og bandspotti er allt sem
þarf og með því einu að kunna að fitja upp og prjóna slétt og brugðið má skapa flíkur af ýmsum gerðum. Þeir sem hafa
áhuga á að uppgötva nýjar víddir í prjóni geta öðlast enn meira frelsi með aukinni þekkingu í prjónatækni. Ætlast er til að
þátttakendur hafi nokkra reynslu af prjóni. Styttra komnir eru einnig velkomnir en gætu þurft að sleppa einhverjum aðferðum.
Á námskeiðunum verður farið í ýmiss konar tækni í prjóni:
1. hluti
5 leiðir til að fitja upp, s.s. skólafit, silfurfit, hundafit og húsgangsfit
Lifandi lykkjur og gagnsemi þeirra
Snúrukantar
Affellingar s.s. grunnskólaaffelling, snúruaffelling, laus affelling, púffaffelling
Nokkrar mismunandi úrtökur og aukningar
Hnappagöt
2. hluti
Fleiri leiðir til að fitja upp, s.s. þýsk fit, eistnesk fit, hólkfit, hringfit
Fleiri leiðir til að fella af , s.s. nálaraffelling, þriggja prjóna affelling og hólkaffelling
Munsturprjón, s.s. krosssaumsprjón, mosaprjón, sandprjón
Mótun með stuttum umferðum
Bjálkakofaprjón
Að taka upp lykkjur
Prjónað aftur á bak
Frjálst prjón – freeform knititng
EZ vinnusmiðja 2 skipti, 8 kennslustundir.
Smiðja í anda Elizabeth Zimmermann (1910-1999) sem er þekkt meðal prjónara um allan heim fyrir einstaka nálgun að prjóni
og ótrúlega hönnun þar sem margar flíkur eru verkfræðileg meistaraverk. Eftir hana liggja ótal uppskriftir sem eru vel þekktar
s.s. Baby surprise jacket, Pí sjalið, Möbius vestið, tomten peysan og february baby sweater sem er fyrirmyndin að february
lady sweater sem hefur náð miklum vinsældum á Íslandi. Við skoðum hvernig arfleifð EZ er haldið á lofti í dag, m.a. í
prjónasamfélaginu á www.ravelry.com. Ein af merkilegri uppgötvunum EZ er hlutfallakerfi sem hún hannaði til að prjóna
peysur í hvaða stærð sem er (EPS, Elizabeth percentage system). Kerfið gerir peysuuppskriftir algjörlega óþarfar og veitir
möguleika á endalausum útfærslum. Það hlýjar okkur Íslendingum um hjartarætur að EZ hafði mikið dálæti á íslensku ullinni
og kynnti hana ötullega vestanhafs.
Í smiðjunni mun andi EZ svífa yfir vötnum. Sagt verður frá lífshlaupi hennar, nokkrum helstu meistaraverkum og ýmsum
lausnum sem hún fann upp til að auðvelda líf prjónara. Við skoðum myndbönd þar sem EZ og dóttir hennar Meg Swansen
sýna ýmsar prjónaaðferðir og spjalla um lífið, prjónið og tilveruna.
Í smiðjunni prjónum auðvitað í anda EZ. Byrjað verður á Baby surprise jacket og fyrir þá sem vilja meira fitjum við líka upp á Pí sjalinu.
Peysur að ofan 1 skipti, 4 kennslustundir.
Flestir prjóna peysur með því að byrja að neðan, á búknum, prjóna upp að handvegi, prjóna svo ermarnar og skella síðan
öllu saman áður en axlastykkið er prjónað. Þetta er hin klassíska íslenska aðferð sem er undantekningarlítið notuð í
lopapeysuprjóni. Aðrir hafa vanist á að prjóna hvert stykki fyrir sig og pressa þau og sauma saman í lokin.
Á þessu námskeiði verður hins vegar kennt að prjóna peysur að ofan. Þá er byrjað á hálsmálinu og svo unnið niður á við.
Ermarnar eru prjónaðar að búki loknum og svo er strax hægt að fara í peysuna því frágangurinn er lítill sem enginn.
Það er skoðun margra að það sé mun einfaldara að prjóna peysur að ofan sérstaklega vegna þess að prjónarinn hefur mun
betri stjórn á flíkinni og því sem gerist eftir því sem unnið er niður á við. Þannig má máta flíkina á öllum stigum prjónsins og
gera sér betur grein fyrir hvernig móta má flíkina með úrtökum og aukningum svo að hún passi akkúrat á viðtakandann.
Á námskeiðinu verður farið í helstu atriði sem þarf að hafa í huga þegar peysa er prjónuð að ofan. Stuðst verður við bókina
Knitting from the top eftir Barböru G. Walker. Prjónuð verður einföld peysa, heil eða lokuð í barnastærð.
Mósaíkprjón 1 skipti, 4 kennslustundir. Mósaíkprjón er munsturprjón með 2 litum þar sem bara er unnið með annan litinn í einu. Þannig verður það sem virðist flókið munstur í raun mjög auðvelt að prjóna.