Baby surprise

Námskeið 24.okt - 27.okt.

Kennarar verða:

Ragnheiður Eiríksdóttir
Eva Hulda Emilsdóttir
Katrín Ósk Björnsdóttir
Edda Lilja Guðmundsdóttir
Jóhanna Pálmadóttir

Kennt er frá kl. 10.oo laugard. 24.okt.í til kl.16.3o þriðjud. 27.okt.
Verð er 44.500– kr. Innifalið í námskeiðsverði er:
Kennsla, hádegisverður og kaffi,
hátíðarkvöldverður og allar leiðsagnir.
Leiðsagnir verða um Kvennaskólann, Heimilisiðnaðarsafnið, Þingeyrakirkju og heimsókn í Ullarþvottastöðina.

Öll kennslugögn eru innifalin.

Sjá námskeiðslýsingar hér til hliðar.
Sjá stundatöflu hér.
Nemendur geta raðað saman þeim námskeiðum sem óskað er eftir að taka.


 


Gisting er ekki innifalin en ýmsir möguleikar eru á gistingu á Blönduósi.
Nánari upplýsingar í s. 894-9030 og www.nv.is og www.northwest.is/blonduos.asp

Kvennaskólinn

Á lengri námskeiðum Textílsetursins er markmiðið að bjóða
upp á umhverfi þar sem áhugasamir geta komið saman í
3-5 daga við handíðir og handverk í fríi frá amstri hversdagsins.
Námskeiðin eru tilvalin til afslöppunar og til að njóta þessa að skapa,
vinna og læra í samfélagi við aðra með svipuð áhugamál. Nokkur námskeið eru í boði hverju sinni svo vinahópar eða fjölskyldur geta fundið eitthvað við sitt hæfi.




Í Kvennaskólanum á Blönduósi fór fram kennsla í ýmsum kvenlegum listum og ber byggingin með sér andblæ liðinna tíma. Textílseturs Íslands hefur aðsetur í Kvennaskólanum og hefur það að markmiði að endurvekja og efla textílfræðslu og textíllistir, með rannsóknum, kennslu og fræðslu.
veggteppikannaBjallaKvennaskólanemar Textílsetur Íslands,
Kvennaskólanum, Árbraut 31,
540 Blönduós.

skráning: textilsetur@simnet.is