Baldýring

Kennari er Inda Benjamínsdóttir úr Faldafeyki, áhugahóps um faldbúninginn. Námskeiðið er í samstarfi við Heimilisiðnaðarskólann.

Þetta námskeið hentar vel bæði byrjendum og þeim sem eru lengra komnir, t.d. ef þörf er á aðstoð við að klára hálfunnið verk....
Námskeiðið er 35 kennslustundir.

Kennt er frá kl. 10.oo laugard. 27.júní til kl.12.oo miðvikud. 1. júlí.
Verð er 44.500– kr. Innifalið í námskeiðsverði er:
Kennsla, hádegisverður og kaffi laugard.-þriðjud.,
hátíðarkvöldverður sunnudag og allar leiðsagnir.
Leiðsagnir verða um Kvennaskólann, Heimilisiðnaðarsafnið, Þingeyrakirkju og heimsókn í Ullarþvottastöðina.

Öll kennslugögn eru innifalin.

  • Kynntar verða mismundandi gerðir af borðum; sbr. 19.aldar, 20.aldar og borðar á faldbúning, belti og kragi við faldbúning.
  • Kennt verður að setja upp borða eða það verkefni sem nemendur velja.

Efni verður til sölu á staðnum.

HFI

Gisting er ekki innifalin en ýmsir möguleikar eru á gistingu á Blönduósi.
Nánari upplýsingar í s. 894-9030 og www.nv.is og www.northwest.is/blonduos.asp

Kvennaskólinn

Á lengri námskeiðum Textílsetursins er markmiðið að bjóða
upp á umhverfi þar sem áhugasamir geta komið saman í
3-5 daga við handíðir og handverk í fríi frá amstri hversdagsins.
Námskeiðin eru tilvalin til afslöppunar og til að njóta þessa að skapa,
vinna og læra í samfélagi við aðra með svipuð áhugamál. Nokkur námskeið eru í boði hverju sinni svo vinahópar eða fjölskyldur geta fundið eitthvað við sitt hæfi.




Í Kvennaskólanum á Blönduósi fór fram kennsla í ýmsum kvenlegum listum og ber byggingin með sér andblæ liðinna tíma. Textílseturs Íslands hefur aðsetur í Kvennaskólanum og hefur það að markmiði að endurvekja og efla textílfræðslu og textíllistir, með rannsóknum, kennslu og fræðslu.
veggteppikannaBjallaKvennaskólanemar Textílsetur Íslands,
Kvennaskólanum, Árbraut 31,
540 Blönduós.

skráning: textilsetur@simnet.is