Knipl - ullarknipl, vírknipl og silkiknipl

 

Kennari er Ingibjörg Ágústsdóttir úr Faldafeyki, áhugahóps um Faldbúninginn. Námskeiðið er í samstarfi við Heimilisiðnaðarskólann.


Námskeiðið er 35 kennslustundir.

Kennt er frá kl. 10.oo laugard. 27.júní til kl.12.oo miðvikud. 1. júlí.
Verð er 44.500– kr. Innifalið í námskeiðsverði er:
Kennsla, hádegisverður og kaffi laugard.-þriðjud.,
hátíðarkvöldverður sunnudag og allar leiðsagnir.
Leiðsagnir verða um Kvennaskólann, Heimilisiðnaðarsafnið, Þingeyrakirkju og heimsókn í Ullarþvottastöðina.

Öll kennslugögn eru innifalin.


Kniplingar er blúndugerð sem eiga sér langa sögu. Unnið er með mörg kefli á bretti og fléttað saman eftir kúnstarinnar reglum. Á Íslandi eins og í Evrópu þekkjast kniplingar sem blúndugerð en sérstök þróun varð í gerð ullarkniplinganna hér á landi.

Á faldbúningnum eru ullarkniplingar á pilsi og svuntu eða samfellu og eru til í heimildum frá upphafi 18.aldar. Fjölmörg mynstur og prufur hafa varðveist, bæði á búningunum og sem stakir bútar.

Innan Faldafeykis, sem er áhugahópur um endurgerð gamla faldbúningsins, hefur verið unnið markvisst að endurgerð ullarkniplinganna ásamt því fjölbreytta handverki sem einkennir faldbúninginn. Ingibjörg Ágústsdóttir hefur skráð, gert uppdrætti og prufur sem eru eftirgerð eldri kniplinganna.

Ingibjörg hefur þegar kniplað á tvö pils og svuntur, ásamt kraga og upphlutum. Þessir búningar ásamt fleirum verða til sýnis á meðan á námskeiðinu stendur.

Ingbjörg leiðbeinir með það úrval mynstra sem er í boði, en hún hefur fært þessi mynstur í tölvutækt form.  Ullargarn sem hefur reynst best verður til sölu á námskeiðinu. Kniplbretti verða lánuð á meðan á námskeiðinu stendur.

 

Gisting er ekki innifalin en ýmsir möguleikar eru á gistingu á Blönduósi.
Nánari upplýsingar í s. 894-9030 og www.nv.is og www.northwest.is/blonduos.asp

Kvennaskólinn

Á lengri námskeiðum Textílsetursins er markmiðið að bjóða
upp á umhverfi þar sem áhugasamir geta komið saman í
3-5 daga við handíðir og handverk í fríi frá amstri hversdagsins.
Námskeiðin eru tilvalin til afslöppunar og til að njóta þessa að skapa,
vinna og læra í samfélagi við aðra með svipuð áhugamál. Nokkur námskeið eru í boði hverju sinni svo vinahópar eða fjölskyldur geta fundið eitthvað við sitt hæfi.




Í Kvennaskólanum á Blönduósi fór fram kennsla í ýmsum kvenlegum listum og ber byggingin með sér andblæ liðinna tíma. Textílseturs Íslands hefur aðsetur í Kvennaskólanum og hefur það að markmiði að endurvekja og efla textílfræðslu og textíllistir, með rannsóknum, kennslu og fræðslu.
veggteppikannaBjallaKvennaskólanemar Textílsetur Íslands,
Kvennaskólanum, Árbraut 31,
540 Blönduós.

skráning: textilsetur@simnet.is