Prjóntækni og prjónahönnun
|
Kennari er Margrét Linda Gunnlaugsdóttir, |
![]() |
![]() ![]() |
|
|
Gisting er ekki innifalin en ýmsir möguleikar eru á gistingu á Blönduósi. |
![]() |
Á lengri námskeiðum Textílsetursins er markmiðið að bjóða upp á umhverfi þar sem áhugasamir geta komið saman í 3-5 daga við handíðir og handverk í fríi frá amstri hversdagsins. Námskeiðin eru tilvalin til afslöppunar og til að njóta þessa að skapa, vinna og læra í samfélagi við aðra með svipuð áhugamál. Nokkur námskeið eru í boði hverju sinni svo vinahópar eða fjölskyldur geta fundið eitthvað við sitt hæfi. |
Í Kvennaskólanum á Blönduósi fór fram kennsla í ýmsum kvenlegum listum og ber byggingin með sér andblæ liðinna tíma. Textílseturs Íslands hefur aðsetur í Kvennaskólanum og hefur það að markmiði að endurvekja og efla textílfræðslu og textíllistir, með rannsóknum, kennslu og fræðslu. |
![]() ![]() ![]() ![]() |
Textílsetur Íslands, Kvennaskólanum, Árbraut 31, 540 Blönduós. skráning: textilsetur@simnet.is |