Námskeið |
Tveir hlutar á einn prjón |
||
Kennari |
Katrín Ósk Björnsdóttir |
||
Markmið |
Markmiðið er að þátttakendur nái tökum á tækninni að prjóna 2 hluti á 1 hringprjón. Eftir námskeiðið eiga þátttakendur að getað nýtt tæknina við að prjóna tvær ermar í einu, tvo vettlinga, grifflur eða legghlífar eða eitthvað sem þarfnast þess að vera eins. |
||
Aðferðir |
Kennt verður að prjóna tvo sokka í einu, þar sem byrjað er frá tánni og prjónað áfram upp og fellt af í stroffinu. |
||
Verkfæri og áhöld |
Prjónar no 4, 4 ½ , 50, 80cm eða 100cm langir. Tvær létt-lopa hnotur í sitthvorum litnum, helst ljósar svo auðveldara sé að aðgreina sokkana og sjá hvað maður er að gera. Þátttakendur geta komið með eigin prjóna, garn verður til á staðnum. |
||
Námsgögn |
Kennarinn kemur með námsgögn um helstu aðferðina við að prjóna tvo sokka á einn hringprjón og kemur með prufu sokka til sýnis. |
||
Tími |
4 kennslustundir. |
||
Fjöldi nemenda |
ca. 12 nem. hámark. |
||