Leður og roðvinna

 

nemendur við vinnu

Kennari er Signý Ormarsdóttir, hönnuður.


Námskeiðið er 18 kennslustundir.

Kennt er frá kl. 10.oo - 17.oo laugard. 27.febr. og 9.30 - 16.3o sunnud. 28.febr.
Verð er 21.500– kr. Innifalið í námskeiðsverði er:
Kennsla, hádegisverður og kaffi laugard.-sunnud.,

Öll kennslugögn eru innifalin.

Nemendur geta tekið með sér eigið efni en á staðnum verður efni og tillegg frá Hvítlist. Nemendur geta keypt lím, límband, fitupenna, tvinna, fóður, flíselín og leður.

Námskeiðið er fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Hentar mjög vel fyrir þær sem hafa fengist við roð og leðurvinnu en þurfa að skerpa á tæknilegum útfærslum.

Unnið með leður og roð en verkefni geta verið gleraugnahulstur, taska, kragi, belti eða sýnishorn af mismunandi tækni.

Það sem gott er að hafa með á námskeiðið er:

1. Saumavél og allt sem til þarf í tengslum við hana, nálar og þessháttar.
2. “Saumagræjur “: málband, skæri, tvinna og þess háttar. Ef nemendur eiga sterkan tvinna er gott að hafa hann með annars er slíkur tvinni til sölu.
3. Fóður, rennilása og fylgihluti. Það þarf að fóðra töskurnar og er oft fallegt að hafa það úr öðru en venjulegu fóðri, t.d. hör, flauel, gervi rúskin eða annað sem er til, ekki kaupa sérstaklega heldur taka með það sem er til.
4. Sníðapappír eða maskínupappír til þess að gera snið af töskunum.
5. Gamlar sylgjur eða annað sem hægt væri að hafa með svo sem töskur sem ykkur eru flottar eða gamlar sem hægt er að taka snið af.
6. Þá verður kennt að strekkja pels í kraga ( kanínu, ref eða annað sem er með hárum) og því er gott ef nemendur vilja gera kraga að hafa með sér títuprjóna og frauðplast.  

Signý

Gisting er ekki innifalin en ýmsir möguleikar eru á gistingu á Blönduósi.
Nánari upplýsingar hjá framkvæmdastjóra í s. 894-9030 og www.nv.is og www.northwest.is/blonduos.asp

Kvennaskólinn


Námskeið Textílsetursins hafa að markmiðiði að bjóða
upp á vandaða kennslu þar sem fagmenn jafnt sem áhugamenn geta komið saman við handíðir og handverk í einstöku umhverfi í Kvennaskólanum.
Námskeiðin eru tilvalin til að njóta þess að læra, skapa, og til afslöppunar og
í samfélagi við aðra með svipuð markmið og áhugamál.




Í Kvennaskólanum á Blönduósi fór fram kennsla í ýmsum kvenlegum listum og ber byggingin með sér andblæ liðinna tíma. Textílseturs Íslands hefur aðsetur í Kvennaskólanum og hefur það að markmiði að endurvekja og efla textílfræðslu og textíllistir, með rannsóknum, kennslu og fræðslu.
veggteppikannaBjallaKvennaskólanemar Textílsetur Íslands,
Kvennaskólanum, Árbraut 31,
540 Blönduós.

skráning: textilsetur@simnet.is