Nammigarn Eddutaska

Námskeið 6. - 9. mars 2010.

Kennarar verða:

Ragnheiđur Eiríksdóttir
Edda Lilja Guđmundsdóttir
Helga Jóna Þórunnardóttir
Katrín Ósk Björnsdóttir


Sigríđur Arnardóttir, Sirrý, verður með
námskeiðið "Að laða til sín það góða"
á sunnudagskvöld og þakklætisgöngu
á mánudagsmorgun.

Kennt er frá kl. 10.oo laugard. 6.mars. til kl.14.00 þriðjud. 9. mars.
Verð er 44.500– kr.
Innifalið í námskeiðsverði er:
Kennsla, hádegisverður og kaffi, námskeið Sirrýar,
hátíðarkvöldverður og leiðsögn um Kvennaskólann og Heimilisiðnaðarsafnið.

Öll kennslugögn eru innifalin.

Sjá námskeiðslýsingar hér til hliðar.
Sjá stundatöflu hér.
Nemendur geta raðað saman þeim námskeiðum sem óskað er eftir að taka.

Eddu töskur Nammipeysa
 

Kennarar:

 

Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunarfræðingurinn sem gat ekki hætt að prjóna. Prjónarar ættu að kannast við verk hennar eins og bókina Prjóniprjón og DVD diskinn Prjónum saman.

 

Ragga
Katrín Ósk Björnsdóttir lauk háskólanámi í hannyrðum í Danmörku árið 2008.  Þeir sem leggja leið sína í Nálina í leit að garni og góðum hugmyndum ættu að kannast vel við Kötu, enda er hún algjör hafsjór af þekkingu og telur ekki eftir sér að finna lausnir fyrir týndar prjónasálir. Kata

 

Edda Lilja Guðmundsdóttir er textílkennari og óþrjótandi mannleg (kvenleg) hugmyndauppspretta.  Á árinu 2009 heklaði hún sig inn í hjörtu fólks um allan heim sem fylgdist spennt með blogginu hennar um 52 húfur á 52 vikum.

 

Edda Lilja
Helga Jóna Þórunnardóttir ættu flestir prjónarar að þekkja því hún er annar eigandi Nálarinnar – sem er einn af hornsteinum hannyrðalífsins í Reykjavík.  Hún er jafnvíg á bróderí, prjón og orkeringu  og getur framið hin ýmsu töfrabrögð með þræði og prikum. Helga Jóna er menntuð í hinum virta danska útsaumsskóla Håndarbejdets fremme og á Skals.
Helga Jóna

Það er okkur sönn ánægja að kynna til sögunnar Sigríði Arnardóttur, Sirrý, sem verður með okkur í Textílsetrinu að þessu sinni.

Sirrý er landsmönnum að góðu kunn fyrir störf sín í fjölmiðlum en hún hefur einnig getið sér gott orð fyrir námskeið sín í samskiptafærni og lífsleikni fyrir fullorðna.

Sirrý

Að laða til sín það góða er léttur og einlægur fyrirlestur þar sem þátttakendur fá í ,,nesti” – ,,tæki og tól” til að halda út í framtíðina bjartsýnir og upplitsdjarfir og laða að sér hamingjudaga. 

 

Þakklætisganga með Sirrý er einstök upplifun þar sem við lærum að líta umhverfið okkar nýjum augum og nota krafta okkar á uppbyggjandi hátt.

Nánari upplýsingar um Sirrý er að finna á www.sirry.is


Gisting er ekki innifalin en ýmsir möguleikar eru á gistingu á Blönduósi.
Nánari upplýsingar hjá Ásdísi í s. 894-9030 og www.nv.is og www.northwest.is/blonduos.asp

Kvennaskólinn

Á lengri námskeiðum Textílsetursins er markmiðið að bjóða
upp á umhverfi þar sem áhugasamir geta komið saman í
3-5 daga við handíðir og handverk í fríi frá amstri hversdagsins.
Námskeiðin eru tilvalin til afslöppunar og til að njóta þess að skapa,
vinna og læra í samfélagi við aðra með svipuð áhugamál. Nokkur námskeið eru í boði hverju sinni svo vinahópar eða fjölskyldur geta fundið eitthvað við sitt hæfi.




Í Kvennaskólanum á Blönduósi fór fram kennsla í ýmsum kvenlegum listum og ber byggingin með sér andblæ liðinna tíma. Textílseturs Íslands hefur aðsetur í Kvennaskólanum og hefur það að markmiði að endurvekja og efla textílfræðslu og textíllistir, með rannsóknum, kennslu og fræðslu.
veggteppikannaBjallaKvennaskólanemar Textílsetur Íslands,
Kvennaskólanum, Árbraut 31,
540 Blönduós.

skráning: textilsetur@simnet.is


tilbaka á forsíðu