Tóvinna og spuni

kindur

 

Jóhanna E. Pálmadóttir, textilkennari.


Námskeiðið er 18 kennslustundir.

Kennt er frá kl. 10.oo laugard. 27.febr. til kl.16.3o sunnud. 28.febr.
Verð er 19.500– kr. Innifalið í námskeiðsverði er:
Kennsla, hádegisverður og kaffi laugard.-sunnud.,
Ull og efni í prufur. Áhöld eru einnig á staðnum.

Ljósrituð göng frá kennara.


Markmiðið er að þátttakendur læri um íslensku ullina, einkenni hennar og meðferð. Lært er að taka ofan, hæra og kemba. Þá er kennt að spinna á halasnældu og tileinka sér spunatækni. Einnig verður kennt að tvinna á halasnældu.
Unnið verður með þvegið reyfi.
Nemendur taka ofan og svo verður ullin kembd, lyppuð og undirbúin fyrir spunann. Kennt verður að spinna annarsvegar í s-snúð og hinsvegar í z-snúð.
Halasnælda á hvern þátttakanda (leyfilegt er að taka sínar eigin halasnældur með ef vill) og ull, ásamt kömbum.

 

Gisting er ekki innifalin en ýmsir möguleikar eru á gistingu á Blönduósi.
Nánari upplýsingar hjá framkvæmdastjóra í s. 894-9030 og www.nv.is og www.northwest.is/blonduos.asp

Kvennaskólinn


Námskeið Textílsetursins hafa að markmiðiði að bjóða
upp á vandaða kennslu þar sem fagmenn jafnt sem áhugamenn geta komið saman við handíðir og handverk í einstöku umhverfi í Kvennaskólanum.
Námskeiðin eru tilvalin til að njóta þess að læra, skapa, og til afslöppunar og
í samfélagi við aðra með svipuð markmið og áhugamál.




Í Kvennaskólanum á Blönduósi fór fram kennsla í ýmsum kvenlegum listum og ber byggingin með sér andblæ liðinna tíma. Textílseturs Íslands hefur aðsetur í Kvennaskólanum og hefur það að markmiði að endurvekja og efla textílfræðslu og textíllistir, með rannsóknum, kennslu og fræðslu.
veggteppikannaBjallaKvennaskólanemar Textílsetur Íslands,
Kvennaskólanum, Árbraut 31,
540 Blönduós.

skráning: textilsetur@simnet.is