Vattarsaumur

|
Kennari er Helen Swartling handverkskona.
Námskeiðið er 18 kennslustundir.
Kennt er frá kl. 10.oo laugard. 27.febr. til kl.16.3o sunnud. 28.febr.
Verð er 19.500– kr. Innifalið í námskeiðsverði er:
Kennsla, hádegisverður og kaffi laugard.-sunnud.,
Vattarsaumsnál og efni í prufur.
Öll kennslugögn eru innifalin. |
Markmiðið er a ð þátttakendur læri um vattarsaum og geti tileinkað sér amk. tvær aðferðir.
Vattarsaumur er forn aðferð sem er eldri en bæði prjón og hekl.
Aðferðir við vattarsaum eru margar en byggja allar á að unnið er með þráð og grófa nál, vattarsaumsnál. Unnið er með léttlopa eða hespulopa.
Nemendur læra amk. tvær aðferðir, en margar aðferðir eru þekktar.
Kennari er með mörg sýnishorn af mismunandi aðferðum til að skoða.
|
|
Gisting er ekki innifalin en ýmsir möguleikar eru á gistingu á Blönduósi.
Nánari upplýsingar hjá framkvæmdastjóra í s. 894-9030 og www.nv.is og www.northwest.is/blonduos.asp |
 |
Námskeið Textílsetursins hafa að markmiðiði að bjóða
upp á vandaða kennslu þar sem fagmenn jafnt sem áhugamenn geta komið saman við handíðir og handverk í einstöku umhverfi í Kvennaskólanum.
Námskeiðin eru tilvalin til að njóta þess að læra, skapa, og til afslöppunar og
í samfélagi við aðra með svipuð markmið og áhugamál.
|
Í Kvennaskólanum á Blönduósi fór fram kennsla í ýmsum kvenlegum listum og ber byggingin með sér andblæ liðinna tíma. Textílseturs Íslands hefur aðsetur í Kvennaskólanum og hefur það að markmiði að endurvekja og efla textílfræðslu og textíllistir, með rannsóknum, kennslu og fræðslu.
|
    |
Textílsetur Íslands,
Kvennaskólanum, Árbraut 31,
540 Blönduós.
skráning: textilsetur@simnet.is |